Völsungur hafði betur gegn nágrönnum sínum í KA, 3:0, þegar liðin áttust við í úrvalsdeild kvenna í blaki á Húsavík í kvöld.
Um toppslag var að ræða en Völsungur er áfram í efsta sæti deildarinnar með 34 stig og KA er sæti neðar með 32 stig.
Þrátt fyrir lokatölurnar var viðureignin jöfn og spennandi enda vann Völsungur allar þrjár hrinurnar naumlega.
Heimakonur unnu fyrstu hrinuna 26:24, aðra hrinu 25:22 og Völsungur tryggði sér svo sigur með því að vinna þriðju hrinu 25:21.