Öllum mótum helgarinnar frestað

Engin keppni er möguleg um komandi helgi.
Engin keppni er möguleg um komandi helgi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skíðasamband Íslands hefur frestað öllum mótum á vegum sambandsins sem fram áttu að fara um komandi helgi.

Veðurspáin fyrir helgina er verulega slæm og á heimasíðu SKÍ segir að frestanir séu bæði vegna slæms veðurútlits og hættulegra ferðaskilyrða.

Um þrjú mót er að ræða, skíðagöngumót á Akureyri, bikarmót í alpagreinum á Dalvík og FIS-mót á snjóbrettum sem fram átti að fara í Bláfjöllum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert