Tilskipun Trumps bannar trans konur

Donald Trump ræðir við unga stúlku fyrir undirskriftina í gær.
Donald Trump ræðir við unga stúlku fyrir undirskriftina í gær. AFP/Andrew Caballero-Reynolds

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað forsetatilskipun sem kveður á um að meina trans konum að taka þátt í íþróttum kvenna.

„Stríðið gegn íþróttum kvenna er á enda. Með þessari aðgerð minni í dag erum við að vara alla skóla við sem taka við skattfé að ef þeir láta karlmenn taka yfir íþróttalið kvenna eða leyfa þeim að brjóta sér leið inn í búningsklefa ykkar verða skólarnir rannsakaðir og eiga á hættu að tapa ríkisfjármögnun sinni,“ sagði Trump eftir að hann undirritaði tilskipunina.

Í henni segir meðal annars:

„Það er stefna Bandaríkjanna að ganga gegn þátttöku karla í íþróttum kvenna á víðtækari hátt með tilliti til öryggis, sanngirni, virðingu og sannleika.

Stefnt er að því að koma stærstu íþróttasamböndum og -samtökum Bandaríkjanna og íþróttakonum sem hafa beðið skaða vegna slíkra stefna saman og gera stefnum sem eru sanngjarnar og öruggar hátt undir höfði með hagsmuni íþróttakvenna að leiðarljósi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert