Líney Rut Halldórsdóttir, ráðgjafi ÍSÍ og fyrrverandi framkvæmdastjóri sambandsins, var í dag endurkjörin í stjórn Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) á ársþingi sambandsins í Frankfurt.
Hlaut hún frábæra kosningu og fékk næstflest atkvæði í kjörinu en 49 þjóðir kusu á þinginu sem byrjaði í dag og stendur til morguns. Líney Rut var fyrst kjörin í stjórn samtakanna árið 2017, fyrst allra Íslendinga.
Líney hefur á síðustu árum m.a. gegnt stöðu formanns EOC EYOF Commission, nefndar EOC sem sér um málefni Ólympíuhátíða Evrópuæskunnar en bæði sumar- og vetrarhátíðin fara fram annað hvert ár og eru meðal stærstu íþróttaviðburða álfunnar.
Hefur hún fengið mikið lof fyrir sín störf innan EOC og er vel kynnt á meðal Ólympíunefnda í Evrópu. Ný stjórn EOC tekur við að loknu þinginu en kosið er til fjögurra ára. Sjálfkjörið var í æðstu embætti EOC þar sem eingöngu eitt framboð barst í hvert embætti.
Spyros Capralos frá Grikklandi var endurkjörinn sem forseti, Daina Gudzineviciute frá Litháen sem varaforseti, Peter Mennel frá Austurríki sem gjaldkeri og Carlo Mornati frá Ítalíu sem framkvæmdastjóri.
Þingið sækja af hálfu ÍSÍ, þeir Lárus L. Blöndal forseti og Andri Stefánsson framkvæmdastjóri.