Bjarni fékk silfur í Noregi

Bjarni Þór Hauksson á fullri ferð.
Bjarni Þór Hauksson á fullri ferð. Ljósmynd/SKÍ

Bjarni Þór Hauksson krækti í gær í silfurverðlaun á alþjóðlegu svigmóti í Geilo í Noregi.

Hann varð 0,90 sekúndum á eftir sigurvegaranum Mathias Hoeiby frá Noregi og fékk 29,67 FIS-punkta. Norðmaðurinn Marius Kristoffersen varð þriðji, ríflega sekúndu á eftir Bjarna.

Stefán Gíslason varð í 39. sæti en aðeins 43 keppendur af 104 luku báðum ferðum og meðal þeirra sem duttu út voru nokkrir Íslendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert