Bandaríkjamaðurinn Derrick Harmon missti móður sína nokkrum klukkustundum eftir að hafa verið valinn í NFL-nýliðavalinu í ruðningi.
Pittsburgh Steelers valdi Harmon en hann var 21. í nýliðavalinu og mun spila með liðinu á næstu leiktíð í NFL-deildinni. Leikmaðurinn var í faðmi fjölskyldunnar þegar nýliðavalið átti sér stað en það vantaði móður hans.
Móðir hans, Tiffany Saine, var á spítala en hún hafði verið veik lengi eftir að hafa fengið heilablóðfall árið 2022 og var lömuð vinstra megin.
Harmon fór beint upp á spítalann til að segja móður sinni frá fréttunum en hún lést stuttu síðar.