Sjö Evrópumeistaratitlar – gullsystur frá Reyðarfirði

Kristín Embla Guðjónsdóttir heldur á systur sinni, Elínu Eik.
Kristín Embla Guðjónsdóttir heldur á systur sinni, Elínu Eik. Ljósmynd/Glímusambandið

Íslenska landsliðið í glímu, með syst­ur frá Reyðarf­irði í far­ar­broddi, vann fimm Evr­ópu­meist­ara­titla í kelt­neskri glímu þegar Evr­ópu­meist­ara­mótið í kelt­nesk­um fang­brögðum fór fram í Frakklandi um pásk­ana. 

„Þetta var stór­kost­legt frammistaða hjá okk­ar fólki. Mótið var vel skipu­lagt og and­rúms­loftið ein­stakt. Við tefld­um ekki fram stærsta hópn­um á mót­inu, en sýnd­um að framtíðin í glímu á Íslandi er björt,“ sagði Guðmund­ur Stefán Gunn­ars­son, formaður Glímu­sam­bands Íslands, við mbl.is.

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, Evrópumeistari í hryggspennu, í hörðum átökum.
Heiðrún Fjóla Páls­dótt­ir, Evr­ópu­meist­ari í hrygg­spennu, í hörðum átök­um. Ljós­mynd/​Glímu­sam­bandið

Keppt var í tveim­ur ólík­um en skyld­um glím­u­grein­um – Gouren og hrygg­spennu (e. back-hold) – þar sem aðeins einn kepp­andi mátti keppa fyr­ir hvert land í hverj­um þyngd­ar­flokki.

Ísland var eitt af sex þátt­töku­lönd­um, ásamt Frakklandi, Skotlandi, Englandi, Spáni og Aust­ur­ríki.

Sigursælir Austfirðingar. Systurnar Elín og Kristín keppa fyrir UÍA eins …
Sig­ur­sæl­ir Aust­f­irðing­ar. Syst­urn­ar Elín og Krist­ín keppa fyr­ir UÍA eins og Há­kon Gunn­ars­son en þau kom heim með sam­tals fimm Evr­ópug­ull. Ljós­mynd/​Glímu­sam­bandið

Krist­ín Embla Guðjóns­dótt­ir frá Reyðarf­irði sigraði bæði í Gouren og hrygg­spennu í -80 kg flokki kvenna og varð þar með tvö­fald­ur Evr­ópu­meist­ari.

Syst­ir henn­ar, Elín Eik Guðjóns­dótt­ir, varð svo Evr­ópu­meist­ari í hrygg­spennu í +70 kg flokki ung­linga.

Há­kon Gunn­ars­son sigraði í +90 kg flokki ung­linga bæði í Gouren og hrygg­spennu, ósigraður í öll­um glím­um. Fyr­ir það var hann val­inn besti ungi glímumaður móts­ins í hrygg­spennu, enda sýndi hann yf­ir­burði í öll­um sín­um glím­um.

Íslenska landsliðið í glímu ásamt Ingibergi Sigurðssyni landsliðsþjálfara.
Íslenska landsliðið í glímu ásamt Ingi­bergi Sig­urðssyni landsliðsþjálf­ara. Ljós­mynd/​Glímu­sam­bandið

Jó­hanna Vig­dís Pálma­dótt­ir varð Evr­ópu­meist­ari í +70 kg flokki ung­linga í Gouren. Fyr­ir sitt fram­lag var hún út­nefnd besta unga glímu­kona móts­ins í þeirri grein.

Heiðrún Fjóla Páls­dótt­ir vann Evr­ópu­meist­ara­titil í hrygg­spennu í +80 kg flokki kvenna með öfl­ugri frammistöðu og mik­illi yf­ir­veg­un.

Ljós­mynd/​Glímu­sam­bandið
Ljós­mynd/​Glímu­sam­bandið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert