Fluttur á sjúkrahús eftir hjólreiðaslys

Mikel Landa þurfti að hætta keppni eftir alvarlegt slys.
Mikel Landa þurfti að hætta keppni eftir alvarlegt slys. AFP/Luca Bettini

Spænski hjól­reiðamaður­inn Mikel Landa varð fyrsti kepp­and­inn til að hætta í Giro d’Italia-mót­inu eft­ir að hafa lent í al­var­legu slysi í fyrsta hluta keppn­inn­ar á milli Durrës og Tir­ana í Alban­íu í dag. 

Landa missti stjórn á hjóli sínu og fór út af veg­in­um og lenti næst­um því á ljósastaur. 

Landa var í kjöl­farið flutt­ur upp á sjúkra­hús í Alban­íu. 

Spán­verj­inn var með háar vænt­ing­ar fyr­ir keppn­ina en hann hef­ur áður náð á verðlaunap­all í Giro d’Italia, árin 2015 og 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert