Eyjamenn síðastir í UMFÍ

Fulltrúar ÍBV, UMFÍ og ÍBV eftir ársþingið í Vestmannaeyjum.
Fulltrúar ÍBV, UMFÍ og ÍBV eftir ársþingið í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/UMFÍ

Íþrótta­banda­lag Vest­manna­eyja, ÍBV, er orðinn aðili að Ung­menna­fé­lagi Íslands, UMFÍ, en aðild banda­lags­ins að hreyf­ing­unni mark­ar tíma­mót í sögu UMFÍ.

Aðild að UMFÍ var samþykkt á ársþingi ÍBV fyrr í vik­unni.

Þar með eru öll íþrótta­fé­lög lands­ins, tæp­lega 500 tals­ins, orðin aðild­ar­fé­lög UMFÍ í gegn­um íþrótta­héruð lands­ins, héraðssam­bönd, íþrótta­banda­lög og ung­menna­sam­bönd um allt land. Þetta er í fyrsta sinn í íþrótta­sögu lands­ins sem það ger­ist.

Alls eru fjór­tán íþrótta­fé­lög í Vest­manna­eyj­um aðilar að ÍBV.

Sex ár eru síðan sex íþrótta­banda­lög fengu aðild að UMFÍ en það voru ÍA á Akra­nesi, ÍBA á Ak­ur­eyri, ÍBR í Reykja­vík, ÍS á Suður­nesj­um, ÍBH í Hafnar­f­irði og ÍRB í Reykja­nes­bæ.

Nán­ar er fjallað um þetta á vef UMFÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert