Patrekur til starfa hjá ÍSÍ og UMFÍ

Patrekur Jóhannesson hefur verið ráðinn til ÍSÍ.
Patrekur Jóhannesson hefur verið ráðinn til ÍSÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Pat­rek­ur Jó­hann­es­son, hand­knatt­leiksþjálf­ari og fyrr­ver­andi landsliðs- og at­vinnumaður í hand­knatt­leik, hef­ur verið ráðinn til starfa á svæðis­stöð höfuðborg­ar­svæðis­ins, sem er sam­starfs­verk­efni Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands og Ung­menna­fé­lag Íslands.

Hann tek­ur við starfi svæðis­full­trúa íþrótta­héraðanna á höfuðborg­ar­svæðinu frá og með 1. ág­úst, við hlið Hans­ínu Þóru Gunn­ars­dótt­ur sem gegn­ir því starfi fyr­ir.

Pat­rek­ur á lang­an og far­sæl­an fer­il að baki í hand­bolt­an­um þar sem hann lék með Stjörn­unni og KA hér á landi og með Essen í Þýskalandi og Bi­da­soa á Spáni.

Hann hef­ur þjálfað nær sam­fleytt frá ár­inu 2009, hjá Stjörn­unni, Val, Hauk­um og Sel­fossi en einnig Ems­detten í Þýskalandi og Skjern í Dan­mörku. Þá var hann í átta ár þjálf­ari karla­landsliðs Aust­ur­rík­is, sam­hliða því að þjálfa fé­lagslið á þeim tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert