Sigruðu Færeyinga í Lúxemborg

Íslensku landsliðskonurnar unnu báða leiki sína í Lúxemborg í þessari …
Íslensku landsliðskonurnar unnu báða leiki sína í Lúxemborg í þessari umferð Evrópudeildarinnar. mbl.is/Eyþór Árnason

Ísland vann nokkuð ör­ugg­an sig­ur á Fær­eyj­um, 3:0, í Evr­ópu­keppni kvenna í blaki þegar þjóðirn­ar mætt­ust í Lúx­em­borg í kvöld.

Íslenska liðið vann hrin­urn­ar 25:19, 25:18 og 25:18 og hef­ur nú unnið þrjá af sex leikj­um sín­um í Silf­ur­deild Evr­ópu­móts­ins. Þar er liðið í sjötta sæti af níu liðum. Fær­eyska liðið hef­ur tapað öll­um fimm leikj­um sín­um og er neðst.

Heba Sól Stef­áns­dótt­ir var at­kvæðamest í ís­lenska liðinu með 12 stig og Tinna Rut Þór­ar­ins­dótt­ir var með 9. Hjá Fær­ey­ing­um var Anja Sonn­edótt­ir Daniel­sen efst með 9 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert