Ísold Sævarsdóttir lenti í öðru sæti í sjöþraut U20 ára á Norðurlandamótinu í frjálsum íþróttum í Gautaborg í Svíþjóð í dag.
Ísold hlaut 5490 stig og náði EM U20 ára lágmarki.
Hún hljóp 800 metrana á 2:15,97 mínútum, stökk 3,81m í langstökki sem er persónulegt met og kastaði 39,71m í spjótkasti, sem er annað persónulegt met.