Bandaríkjamaðurinn Scottie Scheffler, fremsti kylfingur heims, fer fyrir dómstóla í byrjun júní. Átti hann að mæta í dómsalinn í dag en því hefur verið frestað til 3. júní.
Scheffler var handtekinn á föstudaginn var fyrir utan Valhalla-golfvöllinn í Kentucky. Reyndi hann að keyra fram hjá slysstaðnum þar sem banaslys átti sér stað þann morgun, þegar ekið var á hjólreiðamann.
Þegar Scheffler nam staðar kom lögreglumaður aðvífandi og kippti honum út úr bílnum. Var honum síðan ýtt upp að bifreiðinni og handjárnum skellt á hann.
Scheffler á yfir höfði sér fjórar ákærur sem teknar verða fyrir 3. júní næstkomandi.
Þær eru eftirfarandi:
Sjálfur neitar hann sök og segir málið byggt á misskilningi.