Íslendingarnir fimm sem kepptu á Golf Group-mótinu á Vesterby-vellinum í Svíþjóð eru úr leik en mótið er hluti af Norðurlandamótaröðinni í golfi.
Komst enginn Íslendinganna í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. Haraldur Franklín Magnús komst næstur því, en hann endaði á tveimur höggum yfir pari og var tveimur höggum frá niðurskurðinum.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Sigurður Arnar Garðarsson, Axel Bóasson og Aron Bergsson voru einnig á meðal þátttakenda á mótinu.