McIlroy með sögulegan árangur í sigtinu

Rory McIlroy hitar upp á Quail Hollow vellinum í Charlotte.
Rory McIlroy hitar upp á Quail Hollow vellinum í Charlotte. AFP/Jared C. Tilton

Banda­ríska PGA-meist­ara­mótið í golfi hófst núna klukk­an 11 að ís­lensk­um tíma á Quail Hollow-vell­in­um í Char­lotte í Norður-Karólínu og þar eru margra augu á Rory McIl­roy frá Norður-Írlandi.

Hann vann sitt fyrsta PGA-mót á þess­um velli fyr­ir fimmtán árum og hef­ur þríveg­is fagnað þar sigri eft­ir það, m.a. þegar hann setti vall­ar­met árið 2015 með því að leika hring á 61 höggi.

Norður-Írinn mæt­ir sjóðheit­ur til leiks eft­ir að hafa unnið Masters-mótið í fyrsta skipti í síðasta mánuði og stefn­ir á að verða fyrsti kylf­ing­ur­inn í tíu ár til að vinna tvö fyrstu stór­mót árs­ins.

McIl­roy fer af stað núna klukk­an 12.22 og með hon­um í rás­hópi eru eng­ir viðvan­ing­ar því það eru Banda­ríkja­menn­irn­ir Scottie Scheffler og Xand­er Schauf­fele.

Scheffler er efst­ur á heimslist­an­um um þess­ar mund­ir og Schauf­fele er ríkj­andi meist­ari eft­ir að hafa unnið PGA-meist­ara­mótið í fyrra.

mbl.is

Staða og úrslit

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert