Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, spilaði frábærlega á þriðja keppnisdegi PGA meistaramótsins í golfi sem fram fer á Quail Hollow vellinum í Norður Karólínu í Bandaríkjunum.
Scheffler spilaði á 65 höggum í gær og hefur þriggja högga forystu fyrir lokahringinn en hann hefur spilað hringina þrjá á ellefu höggum undir pari.
Á eftir honum koma þeir Alex Noren á átta höggum undir pari, Davis Riley og J.T. Poston á sjö höggum undir pari. Þá eru þeir John Rahm, Si Woo Kim og Jhonattan Vegas allir á sex höggum undir pari.
PGA meistaramótið er eitt af fjórum risamótum ársins og fara efstu menn mótsins af stað um klukkan 18:00 í dag.