Sigurður og Heiðrún með forystu

Sigurður Bjarki Blumenstein.
Sigurður Bjarki Blumenstein. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sig­urður Bjarki Blu­men­stein úr GR og Heiðrún Anna Hlyns­dótt­ir úr GS eru með for­ystu í karla- og kvenna­flokki eft­ir ann­an hring­inn í Hval­eyr­ar­bik­arn­um, stiga­móti GSÍ, sem hélt áfram á Hval­eyr­ar­velli í Hafnar­f­irði í dag. 

Sig­urður Bjarki lék á 69 höggi í dag, þrem­ur högg­um und­ir pari, og er sam­tals bú­inn að leika á 139 högg­um eða þrem­ur högg­um und­ir pari. 

Í öðru sæti karla­meg­in er Jó­hann­es Guðmunds­son úr GR sem lék á 68 högg­um eða þrem­ur högg­um und­ir pari og er sam­tals bú­inn að leika á 140 högg­um eða tveim­ur und­ir pari. 

Veig­ar Hreiðars­son úr GA og Elv­ar Már Krist­ins­son úr GR koma síðan í þriðja og fjórða sæti en þeir hafa leikið á 143 högg­um eða einu höggi yfir pari. 

Heiðrún Anna Hlynsdóttir.
Heiðrún Anna Hlyns­dótt­ir. mbl.is/Ó​ttar

Heiðrún Anna lék á 74 högg­um eða fjór­um högg­um yfir pari í dag og hef­ur sam­tals leikið á 146 högg­um, eða sex yfir pari. 

Í öðru sæti er Elsa Mar­en Stein­ars­dótt­ir úr GR sem lék á 76 högg­um eða sex yfir pari í dag. Hún hef­ur alls leikið á 148 högg­um eða átta yfir pari. 

Pamela Ósk Hjalta­dótt­ir og Eva Krist­ins­dótt­ir úr GM koma síðan í þriðja sæti á 155 högg­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert