Heiðrún sigraði á Hvaleyrinni

Heiðrún Anna Hlynsdóttir sigraði í Hafnarfirði og var fimm höggum …
Heiðrún Anna Hlynsdóttir sigraði í Hafnarfirði og var fimm höggum á undan Elsu Maren Steinarsdóttur. Ljósmynd/seth@golf.is

Heiðrún Anna Hlyns­dótt­ir úr Golf­klúbbi Sel­foss stóð uppi sem sig­ur­veg­ari í kvenna­flokki í Hval­eyr­ar­bik­arn­um, einu af stiga­mót­um Golf­sam­bands Íslands, sem lauk í Hafnar­f­irði í dag.

Heiðrún lék loka­hring­inn á 70 högg­um, einu höggi und­ir pari vall­ar­ins, og var sam­tals á 216 högg­um á hringj­un­um þrem­ur, þrem­ur högg­um yfir pari.

Elsa Mar­en Stein­ars­dótt­ir úr GR veitti Heiðrúnu keppni all­an tím­ann en þær voru í nokkr­um sér­flokki á mót­inu. Elsa lék á 73 högg­um í dag, tveim­ur yfir pari vall­ar­ins, og lauk því keppni á 221 höggi sam­tals, fimm högg­um á eft­ir Heiðrúnu.

Eva Krist­ins­dótt­ir úr Golf­klúbbi Mos­fells­bæj­ar varð þriðja á sam­tals 15 högg­um yfir pari og Þóra Sig­ríður Sveins­dótt­ir úr GR varð fjórða á 17 högg­um yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert