Jóhannes Guðmundsson úr sigraði Guðmund Ágúst Kristjánsson félaga sinn úr GR í bráðabana og vann þar með Hvaleyrarbikarinn í karlaflokki í Hafnarfirði í dag en mótið er hluti af stigamótaröð Golfsambands Íslands.
Þeir léku báðir hringina þrjá á samtals 213 höggum, á pari vallarins, en Guðmundur lék hringinn í dag á 69 höggum, tveimur undir pari, á meðan Jóhannes lék á 73 höggum, tveimur yfir pari.
Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar var einu höggi á eftir þeim, lék á 214 höggum samtals eða einu höggi yfir pari vallarins. Hann lék á pari í dag.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir sigraði í kvennaflokki eins og áður hefur komið fram.