Reynir að komast á US Open

Þorsteinn Guðjónsson og Dagbjartur Sigurbrandsson.
Þorsteinn Guðjónsson og Dagbjartur Sigurbrandsson. mbl.is/Ólafur Árdal

Dag­bjart­ur Sig­ur­brands­son, kylf­ing­ur úr GR, tek­ur þátt í loka­úr­töku­móti fyr­ir opna banda­ríska meist­ara­mótið, US Open, í dag.

Úrtöku­mótið fer fram á Kinsale Golf & Fit­n­ess Club-vell­in­um í Col­umbus í Ohi­oríki í Banda­ríkj­un­um en US Open er eitt af fjór­um ri­sa­mót­um golfs­ins og fer fram síðar í mánuðinum.

Í holli með Dag­bjarti er þre­faldi ri­sa­móts­meist­ar­inn Padraig Harringt­on og Sví­inn Alex Nor­en, sem er með tíu sigra á Evr­ópu­mótaröðinni. Dag­bjart­ur fer af stað klukk­an 11.40 að ís­lensk­um tíma og munu 67 kylf­ing­ar berj­ast um nokk­ur laus sæti, en undan­keppn­in í Col­umbus er þekkt fyr­ir að vera ein sú allra erfiðasta.

Leika tvo hringi á ein­um degi

Loka­úr­töku­mót US Open er síðasta stigið í átt að þátt­töku í einu af fjór­um ri­sa­mót­um golfs­ins. Þar leika kylf­ing­ar tvo hringi, 36 hol­ur, á ein­um degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu US Open-mót­inu. Gunn­laug­ur Árni Sveins­son lék í einu af loka­úr­töku­mót­un­um þann 19. maí og var ekki langt frá því að ná alla leið.

Dag­bjart­ur tryggði sér sæti í loka­úr­töku­mót­inu eft­ir frá­bæra spila­mennsku í undan­keppni í Ill­in­o­is. Þar léku 120 kylf­ing­ar um sex laus sæti í loka­úr­töku­mót­inu, og komst Dag­bjart­ur inn eft­ir fimm manna bráðabana, þar sem tvö sæti voru laus.

Marg­ir þekkt­ir kylf­ing­ar

Holl Dag­bjarts í dag er ekki af verri end­an­um:

Padraig Harringt­on er einn af fremstu kylf­ing­um Írlands og hef­ur unnið þrjá risa­titla: Opna breska árin 2007 og 2008, og PGA-meist­ara­mótið árið 2008. Hann var best í 3. sæti heimslist­ans og varði yfir 300 vik­um í efstu tíu sæt­um list­ans.

Hann hef­ur alls unnið 21 mót á alþjóðleg­um vett­vangi og var tek­inn inn í World Golf Hall of Fame árið 2024. Á síðari árum hef­ur Harringt­on náð góðum ár­angri á PGA Tour Champ­i­ons, þar sem hann vann meðal ann­ars U.S. Seni­or Open árið 2022.

Alex Nor­en er sænsk­ur at­vinnukylf­ing­ur sem hef­ur unnið tíu mót á Evr­ópu­mótaröðinni, þar á meðal BMW PGA Champ­i­ons­hip og Scott­ish Open. Hann hef­ur einnig verið hluti af sig­urliði Evr­ópu í Ryder Cup árið 2018.

Eft­ir að hafa glímt við meiðsli snemma árs 2025 sneri Nor­en aft­ur af krafti og var í bar­áttu um sig­ur á PGA-meist­ara­mót­inu í maí, aðeins þrem­ur högg­um á eft­ir fyr­ir loka­hring­inn.

Marg­ir þekkt­ir kylf­ing­ar til viðbót­ar taka þátt í loka­úr­töku­mót­inu í Ohio. Meðal þeirra eru:

Matt Kuch­ar
Rickie Fowler
Max Homa
Ca­meron Young
Thom­as Lehm­an

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert