Tapaði í fyrstu lotu en staðan er jöfn

Gunnlaugur Árni Sveinsson.
Gunnlaugur Árni Sveinsson. Ljósmynd/GSÍ

​Gunn­laug­ur Árni Sveins­son hóf í dag keppni í Arnold Pal­mer Cup í Suður-Karólínu, fyrst­ur ís­lenskra kylf­inga, en það er sterk­asta áhuga­manna­mót heims.

Hann er í liði alþjóðlegra kylf­inga úr banda­ríska há­skóla­golf­inu sem mæt­ir liði Banda­ríkj­anna.

Gunn­laug­ur lék í dag „betri bolta“ með Meju Örtengren frá Svíþjóð og þau biðu lægri hlut í sín­um leik, 3/​2, gegn Cat­her­ine Park og Jack Turner en það þýðir að þau síðar­nefndu voru þrem­ur yfir þegar tveim­ur hol­um var ólokið og sig­ur þeirra því í höfn.

Staðan í keppn­inni er 4:4 en fjór­um viður­eign­um er ólokið.

Á morg­un eru síðan leikn­ar 36 hol­ur og báðir hring­irn­ir í fjór­menn­ingi þar sem kylf­ing­ar leika ein­um bolta og skipt­ast á að slá.

Gunn­laug­ur mun spila með karl­kylf­ingi á fyrri hringn­um og með kven­kylf­ingi á seinni hringn­um.

Á loka­deg­in­um á laug­ar­dag­inn er síðan leik­inn tví­menn­ing­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert