Gunnlaugur í sigurliði á Arnold Palmer Cup

Gunnlaugur Árni Sveinsson.
Gunnlaugur Árni Sveinsson. Ljósmynd/GSÍ

Kylf­ing­ur­inn Gunn­laug­ur Árni Sig­urðsson var part­ur af alþjóðlega liðinu á Arnold Pal­mer Cup, sem er sterk­asta áhuga­manna­mót heims í golfi. Mótið var spilað á Cong­aree Golf Club vell­in­um í Suður-Karólínu í Banda­ríkj­un­um og vann alþjóðlega liðið nokkuð sann­fær­andi sig­ur, 35-25.

Í fyrsta leik Gunn­laugs var hann í liði með Meju Ortengren og töpuðu þau 3&2 í betri bolta gegn Cat­her­ine Park og Jack Turner. Í ann­arri um­ferð var spilaður fjór­menn­ing­ur og þá unnu Gunn­laug­ur og Michael Mjaaseth frá­bær­an sig­ur á Jackson Koiv­un og Car­son Bacha, 2&1.

Í þriðja leik Gunn­laugs var spilaður blandaður fjór­menn­ing­ur og aft­ur var okk­ar maður í sig­urliði. Þá lék hann með Mariu Jose Mar­in gegn Adam Duncan og Ki­ara Todd og unnu þau sann­fær­andi sig­ur, 3&1.

Í fjórða og síðasta leikn­um spilaði Gunn­laug­ur aft­ur gegn Car­son Bacha en nú í tví­menn­ingi og að þessu sinni náði Car­son Bacha fram hefnd­um frá ann­arri um­ferðinni og vann Gunn­laug, 2&1.

Árang­ur­inn hjá Gunn­laugi frá­bær en hann endaði með tvo sigra og tvö töp í þessu sterka móti og lagði sitt á lóðarskál­arn­ar til að tryggja alþjóðlega liðinu sann­fær­andi tíu stiga sig­ur, 35:25.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert