Gamla ljósmyndin: Stóðust atlögur Rússa

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins þrátt fyrir rafrænan þjófnað og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Rússneski björninn var ein þeirra hindrana sem íslensku landsliðsmennirnir í handknattleik þurftu að yfirstíga á leið sinni að verðlaunum bæði á Ólympíuleikunum 2008 og á Evrópumótinu 2010. 

Rússland var með firnasterk landslið í handknattleiknum eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur. Bæði karla- og kvennalandslið Rússa hafa nokkrum sinnum fagnað sigri á stórmótunum í íþróttinni. 

Ísland mætti Rússlandi í öðrum leik sínum í milliriðli á EM 2010 í Austurríki. Leikurinn var fjörugur en Íslendingar stóðust atlögur Rússa og unnu í miklum markaleik 38:30 fyrir framan 4 þúsund áhorfendur í Vín. Sigurinn hafði mikið að segja fyrir íslenska liðið sem komst í undanúrslit ásamt Króatíu, Frakklandi og Póllandi. 

Á meðfylgjandi mynd skorar Snorri Steinn Guðjónsson eitt marka Íslands í leiknum en hann var markahæstur ásamt Alexander Peterssyni með 7 mörk. Snorri er sem kunnugt er landsliðsþjálfari Íslands í dag. Í baksýn má sjá Róbert Gunnarsson herbergisfélaga Snorra í landsliðinu. 

Myndina tók Kristinn Ingvarsson sem myndaði EM 2010 fyrir Morgunblaðið og mbl.is. 

Ísland vann til bronsverðlauna á EM 2010. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert