Stórhefndarsigur Þóris á heimsmeisturunum

Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs.
Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs. AFP/Beate Dahle

Noregur, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, vann heimsmeistara Frakka, 34:22, í vináttulandsleik þjóðanna í dag. 

Frakkar unnu Noreg í úrslitaleik heimsmeistaramótsins á síðasta ári, 31:28, og hefndu Norðmenn því sín í dag. 

Noregur undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana en þar er liðið með Svíþjóð, Danmörku, Suður-Kóreu, Slóveníu og Þýskalandi í riðli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert