Valur hafði betur gegn FH í skemmtilegum leik á Hlíðarenda þar sem Valur sigraði annan leik sinn á tímabilinu, 30:23.
Valur er nú með fimm stig í en FH á toppnum með átta stig
Valur var skrefi á undan í fyrri hálfleik og eftir 11 mínútur voru þeir þremur mörkum yfir en FH náði að jafna metin í 6:6
FH var að elta en var aldrei meira en marki undir þar til liðið tók leikhlé á 29. mínútu, eftir það komst Valur tveimur mörkum yfir en FH minnkaði muninn í 13:12 fyrir
Ásbjörn Friðriksson og Garðar Ingi Sindrason voru markahæsti fyrir FH í fyrri hállfiek með þrjú mörk hvor og Viktor Sigurðsson fyrir Val með þrjú mörk.
FH kom illa til baka í seinni hálfleik og var fjórum mörkum undir eftir tíu mínútur og tóku þá leikhlé en lítið batnaði, þeir slökktu alveg á sér og sóuðu þrem sóknum í röð. FH-ingar voru svo alveg hættir undir lokinn þegar þeir gerðu marga tæknifeila í röð og Valur skoraði úr hraðaupphlaupum. Niðurstaðan 30:23 þrátt fyrir jafnan leik lengst af.