Bergischer hafði betur gegn Minden, 33:32, í spennandi leik í B-deild Þýskalands í handbolta í kvöld.
Arnór Þór Gunnarsson þjálfar Bergischer, sem er í toppsætinu með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Minden er í öðru sæti með sjö stig.
Bergischer féll úr efstu deild á síðustu leiktíð og stefnir á að vinna sér inn sæti í deild þeirra bestu á nýjan leik.
Gerdas Barbarskas skoraði sex mörk fyrir Bergischer og þeir Eloy Maldonado og Yannick Fraatz gerðu fimm hvor.