Kristján stóð fyrir sínu

Kristján Örn Kristjánsson lék vel í kvöld.
Kristján Örn Kristjánsson lék vel í kvöld. Eggert Johannesson

Handknattleiksmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson stóð fyrir sínu í sigri Skanderborg á Kolding, 33:31, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. 

Kristján skoraði þrjú mörk fyrir Skanderborgarliðið en hann gekk í raðir félagsins fyrr á árinu. 

Skanderborg er í sjöunda sæti með átta stig eftir jafnmarga leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert