Selfyssingurinn frábær þegar Melsungen fór á toppinn

Elvar Örn Jónsson í leik með Melsungen.
Elvar Örn Jónsson í leik með Melsungen. Ljósmynd/Melsungen

Elvar Örn Jónsson átti frábæran leik fyrir Melsungen þegar liðið tók á móti toppliði Füchse Berlín í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Leiknum lauk með tveggja marka sigri Melsungen, 33:31, en Elvar Örn skoraði 6 mörk og var næstmarkahæstur hjá liðinu. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað.

Melsungen er með 12 stig í efsta sæti deildarinnar, tveimur stigum meira en Hannover-Burgdorf, Füchse Berlín, Rhein-Neckar Löwen og Gummersbach.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert