Magdeburg hafði betur gegn Lemgo, 30:27, í efstu deild þýska handboltans í Magdeburg í dag.
Magdeburg er í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig eftir sjö leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Melsungen.
Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk og gaf tvær stoðsendingar en Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu í liði Magdeburg.