Landsliðskonurnar öflugar í Þýskalandi

Andrea Jacobsen skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe í kvöld.
Andrea Jacobsen skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe í kvöld. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskonur í handknattleik, létu báðar vel að sér kveða þegar lið þeirra Blomberg-Lippe gerði jafntefli við Oldenburg, 29:29, í þýsku 1. deildinni í kvöld.

Blomberg-Lippe hefur farið vel af stað á tímabilinu og er í fjórða sæti deildarinnar með níu stig líkt og Oldenburg sæti neðar.

Andrea skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe. Díana Dögg bætti við þremur mörkum og gaf tvær stoðsendingar.

Báðar eru þær í 18-manna landsliðshópi Íslands fyrir EM 2024 sem hefst í lok mánaðarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert