Þýska handknattleiksfélagið Großwallstadt hefur leyst Þjóðverjann Nils Kretschmer undan samningi eftir að hann féll á lyfjaprófi.
Kretschmer, sem var fyrirliði liðsins, féll á lyfjaprófi í byrjun þessa mánaðar en ekki var gefið út hvaða ólöglegu efni voru í blóði Þjóðverjans.
Kretschmer gekk í raðir félagsins í sumar en hann hefur farið víða sem leikmaður í Þýskalandi. Þá er hann einnig virkur á samfélagsmiðlum og er með yfir 415 þúsund fylgjenfdur á Instagram.
Großwallstadt leikur í næst efstu deild þýska handboltans.