Baldur Fritz Bjarnason, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, fór á kostum með U19 ára landsliðinu í dag þegar það vann Slóveníu í hörkuleik, 29:28, á alþjóðlegu móti í Merzig í Þýskalandi.
Baldur, sem er aðeins 17 ára gamall en hefur skorað 126 mörk í 14 leikjum fyrir ÍR-inga í úrvalsdeildinni í vetur og er markahæstur allra í deildinni, skoraði hvorki fleiri né færri en 13 mörk í leiknum.
Slóvenar komust í 9:3 en íslenska liðinu tókst að jafna metin fyrir hlé í 11:11. Eftir mikla spennu knúðu strákarnir síðan fram eins marks sigur.
Mörk Íslands: Baldur Fritz Bjarnason 13, Stefán Magni Hjartarson 4, Elís Aðalsteinsson 3, Ágúst Guðmundsson 2, Harri Halldórsson 2, Garðar Sindrason 2, Leó Halldórsson 1, Daníel Bæring Grétarsson 1 og Jason Stefánsson 1.
Jens Sigurðarson varði 7 skot og Sigurjón Atlason varði 3 skot.
Ísland mætir B-liði Þýskalands fyrir hádegið á morgun og síðan Hollandi síðdegis en á sunnudag leikur liðið tvo leiki um endanleg sæti á mótinu.