Lætur af störfum í sumar

Jesper Jensen á hliðarlínunni í úrslitaleik Danmerkur og Noregs á …
Jesper Jensen á hliðarlínunni í úrslitaleik Danmerkur og Noregs á EM 2024 í Vín. AFP/Attila Kisbenedek

Jesper Jensen, þjálfari kvennaliðs Danmerkur í handknattleik, hættir með liðið að eigin ósk í sumar.

Þetta kemur fram á heimasíðu danska handknattleikssambandsins. Danska sjónvarpsstöðin TV2 greindi frá því í síðustu viku að Jensen myndi að öllum líkindum taka við sem þjálfari kvennaliðs Ferencváros, ungversku meisturunum, í sumar.

Hann hefur þjálfað danska liðið frá árinu 2020 og vann til silfurverðlauna á EM 2024 í síðasta mánuði, þegar Danmörk tapaði fyrir Noregi í síðasta leik Þóris Hergeirssonar við stjórnvölinn hjá þeim norsku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert