Valur og Haukar bæði til Tékklands

Valur og Haukar drógust bæði gegn tékkneskum liðum.
Valur og Haukar drógust bæði gegn tékkneskum liðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valur og Haukar drógust bæði gegn tékkneskum liðum í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik. Valur mætir Slavia Prag og Haukar mæta Hazena Kynzvart.

Valur byrjar á heimavelli en Haukar byrja á útivelli. Fyrri leikirnir fara fram 15. eða 16. febrúar og síðari leikirnir viku síðar, 22. eða 23. febrúar.

Einnig var dregið í undanúrslit og fari svo að bæði Valur og Haukar vinni sínar viðureignir sleppa þau við hvort annað. Því er möguleiki fyrir hendi að íslensku liðin mætist í úrslitaleik Evrópubikarsins.

Drátturinn í heild sinni:

Valur – Slavia Prag

Hazena Kynzvart - Haukar

Michalovce – Urbis Gniezno

Porrino – Ionias

Drátturinn í undanúrslit:

Porrino/Ionias – Hazena Kynzvart/Haukar

Michalovce/Urbis Gniezno – Valur/Slavia Prag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert