Ísland nætir Norður-Makedóníu og Rúmeníu ásamt einhverju þriðja liði í riðlakeppni heimsmeistaramóts U21 ára landsliða karla í handknattleik í Póllandi í sumar.
Dregið var í riðla í gær og Ísland var þar í efsta styrkleikaflokki en 32 lið leika á HM U21 árs, rétt eins og á heimsmeistaramóti karla sem nú stendur yfir.
Ljóst er með 30 af 32 þátttökuþjóðunum en eftir er að úthluta einu boðssæti (wildcard), og þá kemst sigurlið í IHF-bikarnum í lokakeppnina en sú keppni fer fram í Kósóvó í mars.
Ísland leikur í F-riðlinum í Katowice en riðlaskiptingin er þannig:
A-riðill: Noregur, Pólland, Slóvenía og Úrúgvæ.
B-riðill: Austurríki, Ungverjaland, Argentína og Brasilía.
C-riðill: Svíþjóð, Japan, Suður-Kórea og Bandaríkin.
D-riðill: Portúgal, Króatía, Alsír og sigurlið IHF-bikarsins
E-riðill: Danmörk, Frakkland, Marokkó og Mexíkó.
F-riðill: Ísland, Norður-Makedónía, Rúmenía og boðslið.
G-riðill: Þýskaland, Túnis, Serbía og Sviss.
H-riðill: Spánn, Egyptland, Barein og Sádi-Arabía.
Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í milliriðla keppninnar.
Keppnin fer fram dagana 18. - 29. júní.