Daníel Freyr Andrésson, markvörður Íslandsmeistara FH í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2027.
Daníel Freyr sneri aftur til FH fyrir síðasta tímabil eftir langa dvöl í atvinnumennsku og varð þá Íslandsmeistari með liðinu í annað sinn, en hann var einnig í liðinu sem hrósaði sigri árið 2011.
„Við erum gríðarlega ánægð að Danni muni standa vaktina í marki okkar FH-inga næstu tvö tímabil enda einn allra besti markvörður landsins,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild FH.