Mikilvægur sigur Íslendingaliðsins í toppbaráttunni

Arnór Þór Gunnarsson er að gera góða hluti með Bergischer.
Arnór Þór Gunnarsson er að gera góða hluti með Bergischer. Ljósmynd/Bergischer

Bergischer vann mikilvægan útisigur á Dormagen, 35:26, í þýsku B-deild karla í handknattleik í kvöld. 

Eftir sigurinn er Bergischer, sem Arnór Þór Gunnarsson stýrir, í efsta sæti B-deildarinnar með 30 stig, þriggja stiga forystu. 

Arnór Viðarsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu en Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert