Handboltanum til heilla að fækka stórmótum

Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta fagna eftir sigur gegn Grikklandi …
Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta fagna eftir sigur gegn Grikklandi á dögunum. mbl.is/Hákon Pálsson

Nýkjörinn formaður Körfuknattleikssambands Íslands setti allt á hliðina á dögunum, innan handboltasamfélagsins í það minnsta, í jómfrúræðu sinni á ársþingi KKÍ sem fram fór á Grand hóteli í Reykjavík 15. mars. 

Formaðurinn rifjaði upp rúmlega 30 ára gamla sögu frá því hann starfaði sem framkvæmdastjóri KKÍ og ég endurtek; 30 ára gamla sögu. Handbolti var ekki á þeim stað sem hann er á í dag fyrir þrjátíu árum. Það ætti öllum að vera ljóst, sérstaklega þeim sem starfa eða hafa starfað til fjölda ára innan handboltahreyfingarinnar.

Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, hafði reyndar aðeins minnst á stórmót í handbolta í öðru samhengi nokkrum dögum áður sem fór heldur ekki vel í handboltasamfélagið. Yfir öllu má nú samt móðgast.

Ég tek það fram að íslenska karlalandsliðið í handbolta er mitt uppáhaldslandslið og ég hef verið ófeiminn við að segja það. Það litast af stóru leyti að því að ég held mikið upp á leikmenn liðsins, enda allt frábærir gaurar.

Kári Árnason er ekki eini maðurinn sem hefur bent á að mögulega sé stórmótum í handbolta ofaukið. Guðjón Valur Sigurðsson, sem spilaði nú einn eða tvo landsleiki fyrir Ísland að mig minnir, minntist sjálfur á þetta þegar hann var fyrirliði landsliðsins.

Væri ekki miklu meiri sjarmi yfir stórmótum í handbolta ef þau væru annað hvert ár í staðinn fyrir hvert einasta ár? Það myndi eflaust lengja líftíma leikmannanna líka í íþróttinni. Handboltinn er miklu vinsælli í dag en hér á árum áður og hann þarf ekki lengur eitt stórmót á ári til þess að halda uppi einhverjum vinsældum.

Það má alveg fara að endurskoða þetta mótafyrirkomulag. Það væri bæði íþróttinni og þeim sem stunda hana til mikilla heilla.

Bakvörðinn má einnig sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert