Ráðast úrslitin á Hlíðarenda?

Valskonur fögnuðu vel eftir sigurinn á Michalovce á Hlíðarenda í …
Valskonur fögnuðu vel eftir sigurinn á Michalovce á Hlíðarenda í gær. mbl.is/Hákon Pálsson

Í fyrramálið kemur í ljós hvort Valskonur leika fyrri eða seinni úrslitaleikinn í Evrópubikarnum í handbolta á heimavelli sínum á Hlíðarenda.

Valskonur slógu út Michalovce frá Slóvakíu með miklum glæsibrag í gær með stórsigri í seinni leiknum á Hlíðarenda, 30:20, eftir að hafa tapað 25:23 í Slóvakíu viku áður.

Mótherjar í úrslitunum eru spænska félagið Porrino sem vann Hazena Kynzvart frá Tékklandi 30:27 á útivelli á laugardaginn, eftir að hafa unnið heimaleikinn með sama markamun, 31:28.

Dregið verður í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg í fyrramálið um hvort liðið verður á heimavelli í hvorri viðureign.

Þar er mikið í húfi því að vonum er mun meiri stemning sem fylgir því að eiga möguleika á að tryggja sér Evróputitil á heimavelli en á útivelli.

Fyrri leikur liðanna fer fram 10. eða 11. maí og sá síðari viku seinna, 17. eða 18. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert