Vænleg staða Hauka eftir nauman sigur

Elín Klara Þorkelsdóttir í leiknum í kvöld.
Elín Klara Þorkelsdóttir í leiknum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ann­ar leik­ur Hauka og Fram í undanúr­slitaviður­eign liðanna í Íslands­móti kvenna í hand­bolta fór fram á Ásvöll­um í kvöld og lauk leikn­um með sigri Hauka 25:24.

Staðan í ein­víg­inu er því 2:0 fyr­ir Hauka en þrjá sigra þarf til að kom­ast í úr­slita­ein­vígið gegn Val eða ÍR. Hauk­ar þurfa því bara einn sig­ur til viðbót­ar til að vinna ein­vígið.

Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik í dag þó Hauk­ar hafi oft­ast verið skref­inu á und­an. Mun­ur­inn var aldrei meiri en tvö mörk en var þó oft­ast bara eitt mark. Hauk­ar voru í raun að mæta allt Fram liði en á laug­ar­dag því gest­irn­ir gáfu ekk­ert eft­ir. Má því segja að bæði lið hafi mætt til leiks í kvöld.

Þegar 15 mín­út­ur voru liðnar af leikn­um var staðan 6:6 en Hauk­ar fóru með eins marks for­skot inn í hálfleik­inn. Lítið var skorað í fyrri hálfleik sem staf­ar af því að markverðir liðanna voru að eiga fín­an fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik 10:9 fyr­ir Hauka.

Elín Klara Þor­kels­dótt­ir skoraði 6 mörk í fyrri hálfleik fyr­ir Hauka og varði Sara Sif Helga­dótt­ir 5 skot.

Hjá Fram var Val­gerður Arn­alds með 3 mörk í fyrri hálfleik en Darija Zecevic varði 7 skot.

Þrátt fyr­ir að Fram byrjaði seinni hálfleik­inn þá tókst Hauk­um að skora fimm fyrstu mörk­in og kom­ast 6 mörk­um yfir í stöðunni 15:9 sem var mesti mun­ur­inn til þessa. Fram skoraði sitt fyrsta mark í seinni hálfleik þegar um sjö og hálf mín­úta var liðin af hálfleikn­um.

Hildur Lilja Jónsdóttir brýst í gegn í kvöld.
Hild­ur Lilja Jóns­dótt­ir brýst í gegn í kvöld. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fram náði að minnka mun­inn í 2 mörk í stöðunni 15:13 áður en Elín Klara Þor­kels­dótt­ir skoraði sitt átt­unda mark úr ví­tak­asti og kom Hauk­um þrem­ur mörk­um yfir.

Rest­in af leikn­um hjá Fram fór í að saxa niður for­skot Hauka. Þegar 2:30 voru eft­ir var mun­ur­inn bara eitt mark í stöðunni 23:22 fyr­ir Hauka. Þegar ein mín­úta var eft­ir af leikn­um var staðan 24:23 fyr­ir Hauka og leik­ur­inn gal­op­inn. Hauk­ar tóku leik­hlé þegar 40 sek­únd­ur voru eft­ir. Elín Klara fiskaði víti þegar 24 sek­únd­ur voru eft­ir. Hún skoraði úr vít­inu og tryggði Hauk­um sig­ur­inn. Fram náði að minnka mun­inn þegar 10 sek­únd­ur voru eft­ir en komust ekki lengra.

Elín Klara Þor­kels­dótt­ir skoraði 11 mörk fyr­ir Hauka, þar af 5 úr vít­um. Sara Sif Helga­dótt­ir varði 8 skot, þar af eítt víta­skot.

Alfa Brá Hagalín, Val­gerður Arn­alds og Lena Mar­grét Valdi­mars­dótt­ir skoruðu all­ar 5 mörk fyr­ir Fram. Darija Zecevic varði 10 skot.

Hauk­ar 25:24 Fram opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert