Íslandsmeistararnir örugglega í úrslitin

Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk í kvöld.
Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lovísa Thomp­son var marka­hæst hjá Íslands­meist­ur­um Vals þegar liðið tryggði sér sæti í úr­slit­um Íslands­móts kvenna í hand­bolta með ör­ugg­um sigri gegn ÍR í þriðja leik liðanna í undanúr­slit­un­um á Hlíðar­enda í kvöld.

Leikn­um lauk með átta marka sigri Vals, 31:23, en Lovísa gerði sér lítið fyr­ir og skoraði sjö mörk í leikn­um.

Valskon­ur leiddu með þrem­ur mörk­um í hálfleik, 15:12, en sig­ur Íslands­meist­ar­anna var aldrei í hættu í síðari hálfleik.

Val­ur mæt­ir annaðhvort Hauk­um eða Fram í úr­slita­ein­víg­inu en Hauk­ar leiða 2:1 í ein­víg­inu. Fjórði leik­ur liðanna fer fram í Úlfarsár­dal í kvöld.

Mörk Vals: Lovísa Thomp­son 7, Elísa Elías­dótt­ir 6, Thea Imani Sturlu­dótt­ir 5, Þórey Anna Ásgeirs­dótt­ir 4, Elín Rósa Magnús­dótt­ir 4, Hildigunn­ur Ein­ars­dótt­ir 2, Sig­ríður Hauks­dótt­ir 2, Guðrún Hekla Trausta­dótt­ir 1.

Var­in skot: Haf­dís Renötu­dótt­ir 13, Silja Müller 2.

Mörk ÍR: Sylvía Sig­ríður Jóns­dótt­ir 6, Sara Dögg Hjalta­dótt­ir 6, Matt­huld­ur Lilja Jóns­dótt­ir, Ásthidur Bertha Bjarka­dótt­ir 3, Katrín Tinna Jens­dótt­ir 2, Vaka Líf Krist­ins­dótt­ir 1, Anna María Aðal­steins­dótt­ir 1, Erla María Magnús­dótt­ir 1.

Var­in skot: Ing­unn María Brynj­ars­dótt­ir 9.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert