Gunnari Magnússyni þjálfara Aftureldingar sárnar meira vannýtt tækifæri fyrr í undanúrslitarimmunni gegn Val heldur en tapið í oddaleiknum á Hlíðarenda í kvöld.
„Akkúrat núna er ég að hugsa um tækifærið í framlengingunni í fyrsta leiknum [sem Valur vann]. Það svíður rosalega núna því þar vorum við tveimur mörkum yfir. Einnig fengum við tækifæri í þriðja leiknum því þar vorum við lengi yfir. Að ná ekki að loka öðrum leiknum situr rosalega í mér,“ segir Gunnar en Valur vann 33:29 í oddaleiknum í kvöld og var yfir allan leikinn frá því í stöðunni 3:2.
„Þessi leikur var sístur hjá okkur. Það mætti greina þetta í döðlur en að mínu mati er Björgvin Páll munurinn á liðunum í kvöld. Hann varði yfir 20 skot og var sá sem við strönduðum á. Varði mörg dauðafæri eins og víti og var okkur erfiður í kvöld. Við fengum tvö tækifæri til að jafna leikinn í síðari hálfleik. Mögulega hefðum við getað gengið á lagið ef það hefði tekist. Mér fannst við koma okkur í góð skotfæri eins og alltaf,“ sagði Gunnar þegar mbl.is tók hann tali á Hlíðarenda.
Gunnar Magnússon má vera svekktur eftir undanúrslitarimmuna gegn Val.
mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir