Þórir Hergeirsson ráðinn til HSÍ

Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn faglegur ráðgjafi á afrekssviði hjá …
Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn faglegur ráðgjafi á afrekssviði hjá HSÍ. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórir Her­geirs­son hef­ur verið ráðinn fag­leg­ur ráðgjafi á af­reks­sviði hjá Hand­knatt­leiks­sam­bandi Íslands. Til­kynnt var um ráðning­una á frétta­manna­fundi sam­bands­ins á Hlíðar­enda rétt í þessu.

Um nýja stöðu er að ræða hjá HSÍ þar sem Þórir mun vera hluti af teymi sem hef­ur um­sjón með því að móta af­reks­stefnu sam­bands­ins auk annarra af­reksmála.

Jón Hall­dórs­son formaður HSÍ skýrði frá því á fund­in­um að ráðning Þóris væri hluti af efldri af­reks­stefnu sam­bands­ins. Þórir muni mynda af­reksteymi með Snorra Steini Guðjóns­syni og Arn­ari Pét­urs­syni, landsliðsþjálf­ur­um karla og kvenna, og Jóni Gunn­laugi Viggós­syni, íþrótta­stjóra HSÍ.

Þórir Hergeirsson fyrir miðju á fréttamannafundi HSÍ í dag.
Þórir Her­geirs­son fyr­ir miðju á frétta­manna­fundi HSÍ í dag. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

Þórir, sem er 61 árs gam­all Sel­fyss­ing­ur, er sig­ur­sæl­asti landsliðsþjálf­ari í sögu hand­bolt­ans eft­ir að hafa þjálfað kvennalið Nor­egs frá 2009 til 2024 með stór­brotn­um ár­angri.

Norska kvenna­landsliðið varð sex sinn­um Evr­ópu­meist­ari, þris­var heims­meist­ari og tvisvar Ólymp­íu­meist­ari und­ir hans stjórn og vann til viðbót­ar tvenn silf­ur­verðlaun á heims­meist­ara­mót­um, ein á Evr­ópu­móti og tvenn bronsverðlaun á Ólymp­íu­leik­um.

Áður var hann aðstoðarþjálf­ari landsliðsins í átta ár. Fram að því þjálfaði hann karlalið El­ver­um, Gjerpen og Nær­bö í Nor­egi.

Hann lét af störf­um hjá norska sam­band­inu í des­em­ber síðastliðnum eft­ir að hafa gert norska liðið að Evr­ópu­meist­ur­um í sjötta sinn und­ir sinni stjórn.

Síðan þá hef­ur Þórir sinnt ýmis kon­ar störf­um, haldið fyr­ir­lestra víðs veg­ar og ekki viljað festa sig á nein­um ein­um stað en hef­ur nú skuld­bundið sig HSÍ.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert