„Góðir hlutir gerast hægt, er það ekki?“ spurði Þórir Hergeirsson, nýráðinn faglegur ráðgjafi afrekssviðs Handknattleikssambands Íslands, um aðdragandann að ráðningu sinni.
Þórir lét af störfum sem þjálfari norska kvennalandsliðins í desember en Guðmundur B. Ólafsson, sem þá var formaður HSÍ, hafði sett sig í samband við hann fyrr.
„Þetta byrjaði í september þegar Guðmundur hafði samband eftir að ég tilkynnti að ég myndi ekki endurnýja samning minn hjá norska sambandinu.
Það var flott. Hann hafði áhuga á að ræða málin um eitthvað hlutverk fyrir mig í þessu afreksstarfi hér,“ sagði Þórir í samtali við mbl.is.
Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ræddi sömuleiðis við hann.
„Síðan kom Vésteinn líka inn í þetta og ég hef verið í samskiptum við hann. Hann er búinn að vinna frábæra vinnu hérna með góðu fólki í þessum afreksmálum. Afreksmiðstöðin er að koma.
Það svona ýtti undir þetta hjá mér. Síðan hefur Jón [Halldórsson formaður HSÍ] fylgt þessu eftir. Þetta hefur tekið smá tíma, líka til þess að vera ekki að ana að neinu. Það fór svolítill tími í að finna út hvernig þetta ætti að vera,“ útskýrði Þórir.
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Ísland | 6 | 6 | 0 | 0 | 196:143 | 53 | 12 |
2 | Georgía | 6 | 3 | 0 | 3 | 151:162 | -11 | 6 |
3 | Grikkland | 6 | 2 | 0 | 4 | 151:168 | -17 | 4 |
4 | Bosnía | 6 | 1 | 0 | 5 | 143:168 | -25 | 2 |
11.05 | Grikkland | 30:23 | Bosnía |
11.05 | Ísland | 33:21 | Georgía |
08.05 | Georgía | 29:26 | Grikkland |
07.05 | Bosnía | 25:34 | Ísland |
16.03 | Bosnía | 20:22 | Georgía |
15.03 | Ísland | 33:21 | Grikkland |
13.03 | Georgía | 28:26 | Bosnía |
12.03 | Grikkland | 25:34 | Ísland |
10.11 | Bosnía | 23:22 | Grikkland |
10.11 | Georgía | 25:30 | Ísland |
06.11 | Ísland | 32:26 | Bosnía |
06.11 | Grikkland | 27:26 | Georgía |
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Ísland | 6 | 6 | 0 | 0 | 196:143 | 53 | 12 |
2 | Georgía | 6 | 3 | 0 | 3 | 151:162 | -11 | 6 |
3 | Grikkland | 6 | 2 | 0 | 4 | 151:168 | -17 | 4 |
4 | Bosnía | 6 | 1 | 0 | 5 | 143:168 | -25 | 2 |
11.05 | Grikkland | 30:23 | Bosnía |
11.05 | Ísland | 33:21 | Georgía |
08.05 | Georgía | 29:26 | Grikkland |
07.05 | Bosnía | 25:34 | Ísland |
16.03 | Bosnía | 20:22 | Georgía |
15.03 | Ísland | 33:21 | Grikkland |
13.03 | Georgía | 28:26 | Bosnía |
12.03 | Grikkland | 25:34 | Ísland |
10.11 | Bosnía | 23:22 | Grikkland |
10.11 | Georgía | 25:30 | Ísland |
06.11 | Ísland | 32:26 | Bosnía |
06.11 | Grikkland | 27:26 | Georgía |