This is a modal window.
Beginning of dialog window. Escape will cancel and close the window.
End of dialog window.
Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, var að vonum ánægð með 24:20-sigur á Fram í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöldi.
Með sigrinum unnu Haukar einvígið 3:1 og mæta því ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í úrslitaeinvíginu.
„Ég er svo spennt. Þetta verður geggjaður handbolti. Bæði lið keyra rosa hratt og eru með mikil gæði. Þetta verður bara geggjað og góð auglýsing fyrir boltann,“ sagði Sara Sif í samtali við Sjónvarp Símans.
Fyrsti leikur í úrslitaeinvíginu er ekki fyrr en eftir tvær vikur.
„Heldur betur, ég er mjög spennt fyrir því. Við tökum góða endurheimt og sinnum líkamanum 100 prósent. Síðan verður tekin venjuleg vika. Það er líka að taka smá frí.
Það er eitthvað sem við höfum ekki fengið í smá tíma. Það verður indælt. En ég er mjög spennt fyrir einvíginu,“ sagði hún.
Viðtalið við Söru Sif má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Ísland | 6 | 6 | 0 | 0 | 196:143 | 53 | 12 |
2 | Georgía | 6 | 3 | 0 | 3 | 151:162 | -11 | 6 |
3 | Grikkland | 6 | 2 | 0 | 4 | 151:168 | -17 | 4 |
4 | Bosnía | 6 | 1 | 0 | 5 | 143:168 | -25 | 2 |
11.05 | Grikkland | 30:23 | Bosnía |
11.05 | Ísland | 33:21 | Georgía |
08.05 | Georgía | 29:26 | Grikkland |
07.05 | Bosnía | 25:34 | Ísland |
16.03 | Bosnía | 20:22 | Georgía |
15.03 | Ísland | 33:21 | Grikkland |
13.03 | Georgía | 28:26 | Bosnía |
12.03 | Grikkland | 25:34 | Ísland |
10.11 | Bosnía | 23:22 | Grikkland |
10.11 | Georgía | 25:30 | Ísland |
06.11 | Ísland | 32:26 | Bosnía |
06.11 | Grikkland | 27:26 | Georgía |