Verður eitt og sér söguleg stund

Valskonur eru að brjóta blað í íslenskri handboltasögu.
Valskonur eru að brjóta blað í íslenskri handboltasögu. mbl.is/Hákon Pálsson

Valskon­ur brjóta blað í ís­lenskri hand­bolta­sögu þegar þær mæta Porr­ino frá Spáni í tveim­ur úr­slita­leikj­um næstu tvo laug­ar­daga.

Aldrei áður hef­ur ís­lenskt kvennalið leikið til úr­slita í Evr­ópu­keppni í hand­bolta, og reynd­ar ekki í öðrum boltaíþrótt­um svo það sé sagt.

Þær feta í fót­spor karlaliðs Vals sem gerði sér lítið fyr­ir og vann Evr­ópu­bik­ar­keppni karla á síðasta ári eft­ir eft­ir­minni­lega rimmu við Olymp­iacos frá Grikklandi.

Val­ur get­ur um leið fyrst ís­lenskra liða tekið á móti Evr­ópu­bik­ar á eig­in heima­velli því fyrri leik­ur­inn fer fram á Spáni á laug­ar­dag­inn kem­ur og sá seinni á Hlíðar­enda viku síðar.

Hvernig sem allt fer mun Evr­ópu­bik­ar í íþrótt­inni verða af­hent­ur í fyrsta skipti á Íslandi. Það eitt og sér verður sögu­leg stund, hvernig sem leik­irn­ir enda.

Bakvörðinn í heild sinni má sjá á íþrótt­asíðum Morg­un­blaðsins í dag

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert