Gaman að vera kominn aftur

Arnar Freyr Arnarsson í teygjuæfingum fyrir lengra komna í gær.
Arnar Freyr Arnarsson í teygjuæfingum fyrir lengra komna í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Mín upp­lif­un af leikn­um var bara fín. Það er gam­an að vera kom­inn aft­ur í landsliðið,“ sagði Arn­ar Freyr Arn­ars­son, línumaður ís­lenska landsliðsins í hand­knatt­leik, um ör­ugg­an sig­ur á Bosn­íu í undan­keppni EM 2026 á miðviku­dags­kvöld.

„Þetta var pottþétt­ur sig­ur. Það var eitt­hvað sem við hefðum mátt gera bet­ur og eitt­hvað sem var gott líka. Það var gott að vinna á úti­velli og kannski ekk­ert meira um það að segja,“ sagði Arn­ar Freyr í sam­tali við mbl.is fyr­ir æf­ingu í Vík­inni í gær.

Ísland tryggði sér efsta sæti 3. riðils undan­keppn­inn­ar með sigr­in­um og sagði hann það vissu­lega ánægju­legt.

„Held­ur bet­ur. Það var nú mark­miðið okk­ar að vera með fullt hús stiga þegar riðill­inn er bú­inn. Það er einn eft­ir leik­ur en það var alla­vega fínt að klára Bosníu­leik­inn. Svo er bara Georgía eft­ir.“

Vant­ar þrjá leik­menn

Ísland mæt­ir Georgíu í lokaum­ferð riðils­ins í Laug­ar­dals­höll á morg­un. Georgía hafn­ar í öðru sæti og fylg­ir ís­lenska liðinu á EM. Spurður hvers mætti vænta af georgíska liðinu sagði Arn­ar Freyr:

„Hvað skal segja? Við vor­um að fá upp­lýs­ing­ar núna um að það vantaði ein­hverja þrjá leik­menn hjá þeim en ég veit ekki einu sinni hvaða leik­menn það eru. En við bú­umst við hörku­leik.

Þeir eru með góða hægri skyttu og við reyn­um að halda hon­um aðeins niðri. Ann­ars býst ég við þeim svipuðum og í fyrri leikn­um. Þeir voru góðir úti en við erum á heima­velli og þurf­um að mæta af full­um krafti til þess að sigra þá og til þess að enda þetta vel.“

Mark­miðinu er ekki náð

Þar sem ljóst er hvaða lið hafna í efstu tveim­ur sæt­un­um hef­ur leik­ur­inn á morg­un litla þýðingu.

„Nei ein­mitt en eins og ég segi var mark­miðið okk­ar að enda með fullt hús stiga þannig að mark­miðinu er ekki náð. Svo er þetta líka á heima­velli og það verður full höll.

Auðvitað vill maður að það verði gam­an fyr­ir ís­lensku þjóðina að koma og horfa á leik­inn. Að við náum ein­um sigri í viðbót og klár­um þetta með fullu húsi stiga þannig að við get­um farið sátt­ir heim,“ sagði hann að end­ingu.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert