Lesa hugsanir og vona það besta

Elísa Elíasdóttir fremst í flokki í vörninni í dag.
Elísa Elíasdóttir fremst í flokki í vörninni í dag. Ljósmynd/Baldur Þorgilsson

„Við eig­um mikið inni,“ sagði Elísa Elías­dótt­ir, Eyja­kon­an í liði Vals, eft­ir 29:29-jafn­tefli við Porr­ino í fyrri úr­slita­leik liðanna í Evr­ópu­bik­arn­um í hand­bolta á Spáni í dag.

„Þetta var rosa­lega erfiður úti­völl­ur en á sama tíma rosa­lega gam­an og frá­bær upp­lif­un. Ég hef góða til­finn­ingu fyr­ir þessu ein­vígi og spennt fyr­ir seinni leikn­um,“ bætti hún við.

Val­ur náði mest fimm marka for­skoti í byrj­un seinni hálfleiks en þá tók við erfiður kafli og Porr­ino jafnaði. Valsliðið sýndi mik­inn styrk í að kom­ast aft­ur yfir og búa til æsispenn­andi lokakafla.

Elísa Elíasdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir spiluðu oft vel saman …
Elísa Elías­dótt­ir og Elín Rósa Magnús­dótt­ir spiluðu oft vel sam­an í dag. mbl.is/​Jó­hann Ingi

„Auðvitað er svekkj­andi að missa þetta svona niður en við vor­um ein­um færri stór­an hluta seinni hálfleiks og það er erfið staða. Ef þú hefðir sagt mér fyr­ir leik að þetta yrði staðan hefði ég tekið því,“ sagði hún.

Læt­in í höll­inni voru gríðarleg og um erfitt verk­efni fyr­ir Valsliðið að ræða.

„Það var erfitt. Maður heyrði eig­in­lega ekki neitt í nein­um. Maður þurfti að lesa hugs­an­ir hinna og vona það besta. Ég er rosa­lega þakk­lát fyr­ir þann stuðning sem við feng­um líka. Ég set kröfu á fulla höll í heima­leikn­um,“ sagði Elísa.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert