Skilur sátt við handboltann

Sigríður Hauksdóttir með spænskum aðdáendum eftir leik.
Sigríður Hauksdóttir með spænskum aðdáendum eftir leik. mbl.is/Jóhann Ingi

„Ég er nokkuð sátt, auðvitað hefðum við viljað vinna leik­inn en þetta er flott, við erum í góðri stöðu fyr­ir heima­leik­inn,“ sagði Sig­ríður Hauks­dótt­ir eft­ir 29:29-jafn­tefli Vals gegn Porr­ino í fyrri leik liðanna í úr­slit­um Evr­ópu­bik­ars­ins í hand­bolta í dag.

„Þetta var sturlað, ég get eig­in­lega ekki lýst því. Þetta var geggjað, mik­il stemn­ing í hús­inu og for­rétt­indi að fá að taka þátt í þessu,“ sagði Sig­ríður í viðtali við mbl.is eft­ir leik. 

Val­ur byrjaði viður­eign­ina vel og var með fjög­urra marka for­ystu í hálfleik.

„Við þurf­um að nýta fær­in okk­ar aðeins bet­ur og koma okk­ur í betri stöður sókn­ar­lega. Við vor­um í smá brasi sókn­ar­lega í seinni hálfleik og kannski það sem verður okk­ur að falli,“ sagði Sig­ríður

Hvernig leið þér þegar meðbyr­inn verður svaka­leg­ur með þeim, ná að jafna og allt tryll­ist, hvernig leið þér og hvernig náðuðu þið að halda haus?

„Mér leið bara mjög vel. Ég er frek­ar kæru­laus inni á vell­in­um að eðlis­fari. Leik­ur­inn er 60 mín­út­ur og hann er bú­inn þegar hann er bú­inn.“

Seinni leik­ur liðanna fer fram eft­ir viku á Hlíðar­enda.

„Ég á ekki von á neinu öðru en að það verði upp­selt á leik­inn á Hlíðar­enda. Við erum í geggjaðri stöðu til að gera eitt­hvað frá­bært.“ 

Sig­ríður mun leggja skóna á hill­una eft­ir tíma­bilið. Hún seg­ist muna skilja sátt við hand­bolt­ann í lok tíma­bils­ins.

„Ég er búin að vera í hand­bolta síðan ég var sex ára göm­ul og er ótrú­lega þakk­lát fyr­ir þann tíma sem maður hef­ur fengið í því, minn­ing­arn­ar, vin­irn­ir og allt sam­an. Mér finnst vera kom­inn tími til að gera eitt­hvað annað. Ég mun skilja mjög sátt við það í lok tíma­bils.“

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert