Í taugarnar á mér að nýta ekki dauðafærin

Orri Freyr Þorkelsson í Laugardalshöllinni í dag.
Orri Freyr Þorkelsson í Laugardalshöllinni í dag. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Orri Freyr Þorkels­son hornamaður­inn knái, skoraði átta mörk þegar Ísland vann 12 marka sig­ur á Georgíu í dag, 33:21, í lokaum­ferð undan­keppni EM karla í hand­knatt­leik.

Spurður hvort hann væri ánægður með frammistöðu liðsins og sína eig­in sagði Orri Freyr:

„Þetta var svipað og síðast. Þeir voru mikið að hnoðast og leituðu síðan á Gi­orgi Tskhovr­eba­dze sem var at­kvæðamest­ur hjá þeim. En heilt yfir þá var þetta nokk­urn veg­inn eins og ég bjóst við þeim í dag.

Varðandi okk­ar frammistöðu þá er gott að vinna leik­inn. Við hefðum getað nýtt fær­in okk­ar mun bet­ur. Ég er nokkuð ánægður með mig sjálf­an en ég vil samt nýta bet­ur sum færi sem ég klikkaði á. Það fer í taug­arn­ar á mér þegar ég nýti ekki dauðafær­in því ég á að vera með þau al­veg 99%.

Samt sem áður er gott að vera með 8 mörk hérna á okk­ar heima­velli. Það er alltaf jafn gam­an að koma hingað og spila. Fár­an­lega gam­an þegar það er svona vel mætt. Það er svona það sem stend­ur upp úr hjá mér. Bara al­veg geggjað.“

Nú tek­ur fé­lagsliðið við. Er mikið fram und­an hjá ykk­ur í Sport­ing Lissa­bon?

„Já, við erum að fara spila undanúr­slit í bik­arn­um í næstu viku. Síðan er það úr­slita­keppn­in í Portúgal og við stönd­um vel þar. Við þurf­um held ég að ná sigri eða jafn­tefli við Madeira til að verða meist­ar­ar. Það er bara spenn­andi og við þurf­um að klára þessi verk­efni sem end­ar síðan von­andi með bikar­úr­slit­um sem við ætl­um okk­ur í og enda síðan tíma­bilið með sem flesta titla,“ sagði Orri Freyr í sam­tali við mbl.is.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert